Flýtilyklar
Fréttir
Sulludagur :)
Almennt - föstudagur 18.maí 2012 - Álfaborg - Lestrar 1
Mikið fjör og mikið gaman. Hér er búið að sulla, mála og leika sér í
morgun.
Myndir á myndasíðu
Góða helgi til ykkar :)
Góða helgi til ykkar :)
Maí
Almennt - miðvikudagur 02.maí 2012 - Álfaborg - Lestrar 2
** Í maí verður ýmislegt um að vera. Hópastarfið verður ekki eins
niður njörfað og í vetur og verkefnin ráðast meira af veðri og vindum.
Farið verður saman í göngu- og skoðanaferðir, vorið og allt það
dásamlega sem því fylgir verður tekið inn með ýmsumóti.
** Grænfánafréttir, nú höfum við verið að baksast í Grænfánaskýrslunni
okkar sem við þurfum að skila af okkur fyrir 1. maí. Leiðir okkar að nýjum
fána árið 2012 eru þær að við tínum rusl sem við sjáum í náttúrunni
og reynum að spara rafmagn. Börnin hafa verið ótrúlega fljót að tileinka
að tína ruslið. Í öllum gönguferðum eru þau meðvituð um að taka
upp og setja í poka eða vasann það rusl sem þau sjá. Sparnaður
á rafmagni var öllu flóknari, þau eru ekki alveg að tengja það að með
því að slökkva ljós sé verið að spara peninga. Mörg börnin gera sér hins
vegar alveg grein fyrir því að það þarf alls ekki að vera ljós þegar bjart er inni.
Við vonumst til að skýrslan og sú heimsókn sem við fáum frá
Landvernd skili okkur nýjum grænum fána í júní :)

Sumar og sól :)
Almennt - miðvikudagur 18.apríl 2012 - Álfaborg - Lestrar 4
Nú er veturinn að renna sitt skeið og sumarið að detta inn í fjörðinn fagra :)
Um leið og við óskum ykkur öllum gleðilegs sumars viljum við þakka fyrir veturinn. Þó hann hafi verið okkur góður er alltaf notalegt þegar sólin fer að yla kropp og jörð :)
Sólarkveðjur úr Álfaborg

Danssýning 03. 04.
Almennt - þriðjudagur 03.apríl 2012 - Álfaborg - Lestrar 5
** Myndir af danssýningunni á myndasíðu **
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni