Leikskólinn Álfaborg

Heimasíða leikskólans Álfaborgar á Svalbarðsströnd

Fréttir

Fjölgar í Álfaborg :)

Tvö ný börn eru í aðlögun þessa vikuna og eitt byrjar í næstu viku. Það eru þau Eyrún Dröfn í Laugartúni 19g, Jón Emil sem er að flytja frá Borgarnesi í Húsabrekku og Guðmundur Baldvin í Laugartúni 18.

Við bjóðum þau hjartanlega velkomin.



Dagur leikskólans 06. febrúar

Í tilefni af Degi leikskólans ætlum við að hafa opið hús fyrir foreldra, aðstandendur og alla sveitunga. Það verður heitt á könnunni og gestir geta flygst með hvað börnin eru að bardúsa yfir daginn.
Allir velkomnir

Leikskólakennari óskast

Leikskólinn Álfaborg á Svalbarðsströnd óskar eftir að ráða leikskólakennara í 100% starf frá 1. mars 2012. Vinnutími er frá kl. 8.00-16.00. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Lesa meira

Gönguferð í fallega Reitinn okkar

Drifum okkur í gönguferð með eldri börnin upp í Reit. Þau voru ótrúlega dugleg að ganga í snjónum fyrir neðan Reitinn, við sukkum í hverju skrefi, en að lokum komumst við alla leið :)
Kveiktum við síðan upp í grillinu og  fengum okkur svo kakó og smákökur :) - sungum jólalög og Dilla sagði sögu af Óskari frænda sínum og mömmu hans. ÚFF ...hann var sko heppinn að Grýla náði honum ekki ;)

Það var svo falleg birtan og skógurinn okkar svo fallegur.
           Sjá fleiri myndir á myndasíðu


Mynd augnabliksins

pc200072__medium_.jpg

Auglýsingar

Leikskólaumsókn

Póstlistar

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 2407

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning