Leikskólinn Álfaborg

Heimasíða leikskólans Álfaborgar á Svalbarðsströnd

Fréttir

Leikskólakennari óskast

Leikskólinn Álfaborg á Svalbarðsströnd óskar eftir að ráða leikskólakennara í 100% starf frá 1. mars 2012. Vinnutími er frá kl. 8.00-16.00. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Hæfniskröfur:

  • Réttindi sem leikskólakennari skv. 3. gr. laga nr. 87/2008*.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg.

Umsóknarfrestur er til 6. febrúar 2012. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.

Nánari upplýsingar veitir Ragna Erlingsdóttir, leikskólastjóri, í síma 462-4901 eða í tölvupósti á ragna@svalbardsstrond.is.

*Ef ekki berast umsóknir frá leikskólakennurum sem uppfylla hæfniskröfur er heimilt að ráða leiðbeinanda í stöðuna tímabundið til eins árs.



Mynd augnabliksins

p5180010__medium_.jpg

Auglýsingar

Leikskólaumsókn

Póstlistar

Teljari

Í dag: 6
Samtals: 2789

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning