Í upphafi tengjast börn fjölskyldum sínum en þegar út í samfélagið er komið eru það oftar en ekki tengsl barnsins við leikskólann sem skipa þar stóran sess. Það er afar mikilvægt að þessi tengsl séu jákvæð strax í upphafi en til þess að svo sé þarf að gefa barninu góðan tíma til að aðlagast leikskólanum, daglegum venjum hans og siðum. Það er því mikilvægt að góð samvinna takist á milli foreldra og starfsfólks.
Sjá nánar í Foreldrahandbók Álfaborgar


