- Fréttakorn
Álfaborgar
maí 2012
Sælir foreldrar
Sælir foreldrar
páska. Eldri börnin hafa dansað mikið í apríl. Fyrst var það Kúbudansinn hjá Önnu
Richards og Camilio fyrir þrjá elstu árgangana og svo strax á eftir fylgdi dankennsla
hjá Önnu Breiðfjörð fyrir Krumma og Spóa.
niður njörfað og í vetur og verkefnin ráðast meira af veðri og vindum.
Farið verður saman í göngu- og skoðanaferðir, vorið og allt það dásamlega
sem því fylgir verður tekið inn með ýmsumóti.
til okkar 14. og 15. maí.
er miðvikudaginn 16. maí.
Vonandi fáum við þann dag einhvern löggumann til að koma og líta á hjól og
hjálma eins og undan farin ár. Börnin þurfa því þennan dag og alla aðra
hjóladaga að muna eftir hjálmum sínum, hjól og hjálmur fylgjast alltaf að.
Hjóladagar byrja í júní (6. júní) og verða eftirleiðis á miðvikudögum í sumar.
sérstakur dagur verði helgaður börnum hér á landi. Lagt var til að þessi
dagur yrði alltaf síðasta sunnudag maímánaðar ár hvert. Beri daginn
upp á hvítasunnudag skal Dagur barnsins vera næsti sunnudagur á undan
hvítasunnudegi. Dagur barnsins er því þetta árið sunnudaginn 20. maí.
Við í Álfaborg viljum gjarnan halda upp á þennan dag og undanfarin
ár höfum við haft garðpartý….foreldrar og börn hafa hjálpað til við að
hreinsa lóðina, sópa, stinga upp matjurtabeð og sitthvað fleira.
Síðan hefur verið grillað. Þetta hefur tekist en líka mistekist
verði dásamlegt og börn og foreldrar geti átt hér góða stund saman (auglýst síðar).
búið að ákveða dagsetningu. Það skiptir miklu máli að veðrið sé gott því
við höfum með okkur nesti og skemmtilegast er að snæða utan dyra.
náttúrufræðingsins og læknisins Sveins Pálssonar sem dagurinn er tileinkaður.
Þessi vika var mikil umhverfisvika hjá okkur. Börnin í Álfaborg hafa verið mjög dugleg
að hreinsa rusl hér í nágrenninu. Það er búið að fara upp á íþróttavöll,
kringum sundlaug, fyrir neðan Svalbarðseyrarveg alveg að kirkjugarði.
Tínt var rusl í kringum leikskólalóð og líka í runnum kringum Valsárskóla og
leiktækin þar. Krummar hafa hreinsað fjöru í útiskólanum frá vita og eru komin
inn að skeifunni svo kölluðu. Spóar hafa líka hjálpað til þar.
Eftir er að hirða ruslið í fjörunni og flokka.
okkar sem við þurfum að skila af okkur fyrir 1. maí. Leiðir okkar að nýjum fána
árið 2012 eru þær að við tínum rusl sem við sjáum í náttúrunni og reynum að
spara rafmagn. Börnin hafa verið ótrúlega fljót að tileinka að tína ruslið.
Í öllum gönguferðum eru þau meðvituð um að taka upp og setja í poka eða
vasann það rusl sem þau sjá. Sparnaður á rafmagni var öllu flóknari, þau eru
ekki alveg að tengja það að með því að slökkva ljós sé verið að spara
peninga. Mörg börnin gera sér hins vegar alveg grein fyrir því að það þarf alls ekki að
vera ljós þegar bjart er inni. Við vonumst til að skýrslan og sú heimsókn sem við
fáum frá Landvernd skili okkur nýjum grænum fána í júní. Grænfánarnir eru
mjög endingalitlir, amk. hér í rokinu hjá okkur. Þess vegna er ekki fáni núna því
við tímum ekki sparifánanum og vonumst til að fá nýjan hversdags fána í júní
ef allt gengur að óskum. Við höldum ótrauð áfram og nú erum við að hugsa um
nýjar leiðir að markmiðum okkar fyrir fána 2014.
Í næsta fréttakorni fáið þið meira að vita um stöðu mála :)
Börnunum finnst mjög ánægjulegt þessa dagana að geta sleppt
gúmmibuxum, snjógöllum og gúmmístígvélum. Léttir skór, góðar peysur
og utanyfirbuxur ( léttar) eru því kærkominn klæðnaður í töskuna þessa dagana.
sem á heima í Tröðum og bræðurnir Haukur Leo og Hrafn Leví sem munu
búa í Þórsmörk. Við í Álfaborg bjóðum þau öll hjartanlega velkomin til okkar.
eldri auglýsingu að nú er auglýst eftir deildarstjóra við leikskólann.
Helga Stefanía sagði upp deildarstjórastöðunni frá 1. maí
(er með 3ja mánaða uppsagnarfrest) en heldur samt áfram að vera
hér leikskólakennari. Við sjáum mjög eftir henni úr þessari stöðu því
hún gegndi henni með miklum sóma.
kl.20.30-22.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Hvetjum foreldra til að mæta.
Í maí ætlum við að njóta sólar og sunnanvinda og vonum að þið njótið
sömuleiðis.
Með bestu vorkveðju
Álfaborgarkonur
Álfaborgarkonur


