Umhverfissáttmáli Álfaborgar
Vetur, sumar, vor og haust
veðrið okkur lokkar.
Nýtum, njótum endalaust
náttúrunnar okkar.
Leiðir okkar að endurnýjun Grænfána 2014 eru:
* Að nýta og njóta
náttúrunnar
*
Þann 29. júní 2012 fengum við afhentan Grænfána í þriðja sinn *
Umhverfissáttmáli Álfaborgar
Leikskólinn Álfaborg stefnir að því að gera börn og starfsfólk meðvitað um umhverfi sitt og náttúru, þá auðlind sem þar er.
Leiðir okkar að endurnýjun Grænfána 2012 eru:
* Við spörum rafmagn
* Við tínum allt rusl sem við sjáum
* Þann 08. september 2010 fengum
við afhentan Grænfána í annað sinn *
Leiðir okkar að endurnýjun Grænfána 2010 eru:
* Við ræktum grænmeti
* Við endurnýtum runnaafklippur úr okkar garði til gróðusetningar og föndurgerðar
* Þann 29. maí 2008 fengum við afhentan Grænfána í fyrsta sinn *
Leiðir okkar að fyrsta Grænfána 2008 eru:
* Við flokkum allan úrgang
* Við endurnýtum það sem hægt er
* Við jarðgerum
Grænfánaverkefni
Hér kemur smá pistill fyrir nýja foreldra um Grænfánaverkefnið. Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Leikskólinn Álfaborg sótti um til Landverndar að komast á græna grein og um haustið 2005 gekk það eftir. Leiðin sem þarf að fara til að öðlast Grænfánann liggur í gegn um 7 skref en þau eru ákveðin verkefni sem efla eiga vitund barnanna og alls starfsfólks skólans um umhverfismál. Grænfánanum, umhverfismerki Landverndar er leyfilegt að flagga til tveggja ára í senn. Viðurkenningin fæst endurnýjuð ef unnið er áfram gott starf, verkefnin dýpkuð eða nýjum markmiðum bætt við. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða um Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum.
Álfaborg flaggaði grænum fána 29. maí 2008
Skrefin 7 sem um ræðir eru að setja á (1) stofn umhverfisnefnd sem stýrir verkefninu.
(2) Meta stöðu umhverfismála með t.d. gátlista, (3)gera áætlanir um aðgerðir og markmið. Hafa stöðugt(4) endurmat og eftirlit til að tryggja að settum markmiðum sé náð.(5) Námsefnisgerð og verkefni t.d. fá nemendur fræðslu um hvernig megi spara vatn, flokka úrgang og minnka rusl. (6) Að upplýsa og fá aðra með, við þurfum að vera dugleg við að kynna verkefnið og hafa t.d. sýningu á verkum barnanna er tengjast þessari vinnu. Börnin fræða foreldrana heima og öfugt (vonandi) og skólinn þarf að vera duglegur að breiða út boðskapinn. (7)Umhverfissáttmáli, okkar sáttmáli er kominn og lýsir í stuttu máli markmiðum okkar.


