Álagningarseðlar fasteignagjalda á island.is

Álagningarseðlar fasteignagjalda ársins 2012 í Svalbarðsstrandarhreppi hafa nú verið birtir á þjónustugáttinni island.is. Eigendur fasteigna og gjaldendur geta því kynnt sér fasteignagjaldaálagningu ársins þar. Allt sem til þarf er tölva og veflykill frá ríkisskattstjóra.
Álagningarseðlarnir verða einnig sendir í pósti að þessu sinni og munu berast móttakendum á næstu dögum. Hið sama á við um greiðsluseðlana. Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á útsendingu þeirra.



