Svalbarðsstrandarhreppur

Vefsvæði Svalbarðsstrandarhrepps.

Fréttir

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 samþykkt

Fjárhagsáætlun Svalbarðsstrandarhrepps fyrir árið 2012 var samþykkt á 24. fundi sveitarstjórnar þann 13. desember s.l. Í henni er gert ráð fyrir rekstrarafgangi að fjárhæð 776 þkr.

Tekjur A-hluta (aðalsjóðs) eru áætlaðar 216 mkr. Þar af eru útsvarstekjur 122 mkr., tekjur af fasteignaskatti 21,5 mkr. og framlög Jöfnunarsjóðs 55,5 mkr. Samanlagðar tekjur A- og B-hluta (samstæðu) eru áætlaðar 221,6 mkr., rekstrargjöld A- og B-hluta 211,7 mkr. og afskriftir á árinu verða um 13 mkr. Fjármagnsliðir eru áætlaðir jákvæðir um 4 mkr. Fyrirhuguð fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er 20 mkr. og fyrirhuguð fjárfesting í eignarhlutum í félögum er 569 þkr. Handbært fé í árslok 2012 er áætlað 167 mkr. og langtímaskuldir sveitarfélagins eru um 12 mkr.

Samkvæmt áætluninni verða laun og launatengd gjöld um 61% af rekstrarútgjöldum sveitarfélagsins sem er nokkru lægra hlutfall en árin 2010 og 2011. Skatttekjur verða um 64% af heildartekjum en framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um 25%.

Veltufé frá rekstri er áætlað 6,5%, veltufjárhlutfall er áætlað 9,65 og eiginfjárhlutfall er áætlað 0,94.

Fjárhagsáætlun Svalbarðsstrandarhrepps 2012, samstæðuyfirlit



Mynd augnabliksins

p5180043__medium_.jpg

Auglýsingar

Lausar stöður
Facebook
Safnadagur
Vinnuskóli 2012
Gæludýr

Póstlistar

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning