Svalbarðsstrandarhreppur

Vefsvæði Svalbarðsstrandarhrepps.

Fréttir

Förgun sorps frá fyrirtækjum í Svalbarðsstrandarhreppi

Þann 11. janúar 2011 var samþykkt ný gjaldskrá fyrir sorphirðu í Svalbarðsstrandarhreppi. Gjaldskráin var birt á vef stjórnartíðinda þann 28. janúar 2011. Þar er gert ráð fyrir að fyrirtæki beri þann kostnað sem hlýst af förgun þess sorps sem frá þeim kemur, sbr. 4. grein gjaldskrárinnar.

„Gjöld vegna förgunar úrgangs frá fyrirtækjum og stofnunum er skv. gjaldskrá Flokkunar Eyjafjarðar ehf. Fyrirtæki sem kjósa að nýta sér gáma á vegum sveitarfélagsins skulu greiða sorpgjald að lágmarki kr. 18.000. Heimilt er að leggja álag á fyrirtækjagjald samkvæmt mati sveitarstjórnar á sorpmagni frá viðkomandi fyrirtæki, þannig að tryggt sé að gjaldið standi undir þjónustunni.“

Fyrirtæki í sveitarfélaginu eiga því framvegis að sjá um flutning og förgun sorps á eigin kostnað. Þó verður heimilt að semja við sveitarfélagið um að nýta sorpgáma þess gegn greiðslu sorpgjalds sem ræðst af áætluðu sorpmagni frá viðkomandi fyrirtæki. Lágmarksgjald fyrir fyrirtæki verður kr. 18.900 árið 2012, skv. ákvörðun sveitarstjórnar um almenna 5% hækkun gjalda frá og með 1. janúar n.k..

Forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem óska eftir að nýta sorpgáma sveitarfélagsins á komandi ári eru beðnir að hafa samband við sveitarstjóra fyrir 6. janúar 2012, svo hægt verði að fjalla um heimildir til sorplosunar og gjöld vegna þeirra á fundi sveitarstjórnar þann 10. janúar 2012. Gert er ráð fyrir að fyrirtæki sem ekki hafa samband hyggist ekki nýta þennan möguleika.



Mynd augnabliksins

p5180021__medium_.jpg

Auglýsingar

Lausar stöður
Facebook
Safnadagur
Vinnuskóli 2012
Gæludýr

Póstlistar

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning