Svalbarðsstrandarhreppur

Vefsvæði Svalbarðsstrandarhrepps.

Leikskólinn Álfaborg

Leikskóli var stofnaður á Svalbarðsströnd 1993. Hann tók til starfa 15. mars í húsnæði Kaupfélagsins sem þá var hætt rekstri. Tillögur  um nafn á leikskólann voru gerðar meðal foreldra og var nafnið Álfaborg valið. Opnunartími var kl. 08-13.00 og rými fyrir 20 börn.

Leikskólinn Álfaborg opnaði í nýju húsnæði 31. júlí 1995. Þá var boðið upp á nokkra vistunartíma og var leikskólinn opinn frá kl. 07.45 – 17.15. Frá 1. september 2001 hafa öll börnin komið á morgnana og eru mislangt fram á daginn. Leikskólinn er ein deild fyrir 2-6 ára börn og er opinn frá kl. 07.30 – 16.15.
Frá 1. janúar 2006 varð sú breyting, að ákveðið var að taka inn börn frá 18 mánaða aldri.
Leikskólastjóri er Ragna Erlingsdóttir.


Sími: 462-4901. 
Heimasíða  Álfaborgar
Netfang: alfaborg@simnet.is



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning