Erindisbréf fyrir skólanefnd Svalbarðsstrandarhrepps
Um verkefni skólanefndar
1.gr.
Skólanefnd fer með málefni leikskóla og grunnskóla eftir því sem lög og reglugerðir ákveða og sveitastjórn felur henni.
2.gr.
Skólanefnd gerir tillögu til sveitarstjórnar um stefnumörkun á sviði skólamála Svalbarðsstrandarhrepps. Nefndin fylgist með því að skólarnir vinni að settum markmiðum, veiti góða þjónustu og starfsemin sé skilvirk og hagkvæm.
3.gr.
Skólanefnd hefur eftirlit með að öll börn í Svalbarðsstrandarhreppi njóti lögboðinnar fræðslu og umönnunar. Nefndinni ber að tryggja þeim börnum sem vísað hefur verið úr skóla viðeigandi kennsluúrræði. Í störfum sínum ber skólanefnd að vinna að því að allir nemendur hljóti sem besta aðstöðu og jöfnust tækifæri til náms og að skólinn veiti sérhverjum nemanda fræðslu og umönnun eftir aldri sínum og þroska og í samræmi við gildandi aðalnámskrár á hverjum tíma.
Helstu verkefni skólanefndar eru sem hér segir:
a. að staðfesta starfsáætlun skóla ár hvert og skólanámskrár,
b. að fylgjast með framkvæmd náms og kennslu í sveitarfélaginu og gerð skólanámskrár og gerir tillögur til skólastjóra og/eða sveitarstjórnar um umbætur í skólastarfi,
c. að stuðla að tengslum og samstarfi leikskóla og grunnskóla annars vegar og grunnskóla og framhaldsskóla hins vegar,
d. að hafa eftirlit með að jafnan sé fyrir hendi fullnægjandi húsnæði og annar búnaður. Skólanefnd, ásamt skólastjórum, lítur eftir að uppfylltar séu kröfur laga og reglugerða á þessu sviði og gerir tillögur til sveitarstjórnar um úrbætur,
e. að gera tillögu til sveitarstjórnar um skipulag skólamála,
f. að hafa eftirlit með og stuðla að því að skólum sé tryggður aðgangur að sérfræðiþjónustu í samræmi við gildandi lög og reglugerðir,
g. að hafa eftirlit með að ákvæði laga og reglugerða séu uppfyllt og gera tillögur til sveitarstjórnar um úrbætur,
h. að láta menntamálaráðuneyti í té upplýsingar um framkvæmd skólahalds, innra mat skóla, ytra mat sitt, framgang skólastefnu sinnar og áætlanir um umbætur,
i. að hafa eftirlit með starfi tónlistardeildar,
j. að hafa eftirlit með skólatengdu starfi sem veitt er í skólanum utan skólatíma svo sem frístund fyrir börn í 1.- 4. bekk í grunnskóla,
k. að hafa eftirlit með skólaakstri nemenda,
l. að hafa eftirlit með að til séu sem gleggstar upplýsingar um skólamál í Svalbarðsstrandarhreppi og að íbúar hafi aðgang að upplýsingum um þá þjónustu sem í boði er.
m. að fjalla um rekstraráætlun áður en hún er lögð fyrir sveitarstjórn.
4.gr.
Skólanefnd hefur eftirlit með framkvæmd eftirfarandi laga og reglugerða sem byggja á þeim, eins og þau eru á hverjum tíma og að því marki sem lögin leggja skyldur á herðar sveitarfélaga:
a. grunnskólalög nr. 91/2008
b. lög um leikskóla nr. 90/2008
c. lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008
d. lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985
e. reglugerð nr. 198/1992 um eftirlit og leyfisveitingar vegna daggæslu barna í heimahúsum og
f. aðrar lagasetningar Alþingis og reglugerðir ráðuneyta sem á hverjum tíma tengjast verkefnum nefndarinnar.
Um skipan skólanefndar
5.gr.
Sveitarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá fulltrúa í skólanefnd til fjögurra ára í senn og þrjá til vara. Sveitarstjórn tilnefnir formann.
6.gr.
Skólanefnd skiptir með sér verkum og skal á fyrsta fundi kjósa varaformann og ritara. Formaður skólanefndar boðar nefndarfundi og stjórnar þeim.
7.gr.
Skólanefnd fundar svo oft sem þurfa þykir, (þó eigi sjaldnar er 6 sinnum á ári). Skylt er að verða við tilmælum sveitarstjóra og skólastjóra um fund í skólanefnd enda sé fundarefni tilgreint. Einnig ber að kveðja til fundar ef a.m.k. þriðjungur aðalmanna í skólanefnd æskir þess.
8.gr.
Auk skólanefndarmanna eiga eftirtaldir rétt til setu á skólanefndarfundi með málfrelsi og tillögurétti, þegar fjallað er um málefni viðkomandi skóla.
Skólastjóri grunnskólans eða staðgengill í forföllum hans
Leikskólastjóri eða staðgengill í forföllum hans
Fulltrúi kennara grunnskólans
Fulltrúi starfsmanna á leikskóla
Sveitarstjóri
Fulltrúi foreldra barna í Valsárskóla
Fulltrúi foreldra barna í Álfaborg
Um fundarsköp skólanefndar
9.gr.
Um fundarsköp á fundum skólanefndar gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og samþykktar um stjórn og fundarsköp Svalbarðsstrandarhrepps.
Til fundar telst löglega boðað hafi allir skólanefndarmenn, eða varamenn í forföllum aðalmanna svo og aðrir sem seturétt eiga á fundinum, verið boðaðir með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara og þeim jafnframt greint frá dagskrá fundarins. Í dagskrá skal vísað til gagna um þau fundarefni sem til umfjöllunar eru eftir því sem kostur er. Komi upp mál sem krefst skjótrar úrlausnar skólanefndar getur fyrirvari um fundarboð verið skemmri ef enginn skólanefndarmanna mælir gegn því og skal það bókað í upphafi fundar.
Óski nefndarmaður eftir að taka mál á dagskrá skal hann tilkynna formanni það skriflega eða með rafrænum hætti með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund. Heimilt er að taka mál til meðferðar í skólanefnd þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver nefndarmanna óskar þess.
Skólanefnd getur enga ályktun gert nema meirihluti hennar sitji fund. Verði atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns.
Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema formaður eða skólanefnd ákveði annað. Afl atkvæða ræður úrslitum mála.
10.gr.
Um ritun fundargerða skólanefndar gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 32. gr. samþykkta um stjórn og fundarsköp Svalbarðsstrandarhrepps. Ritari skólanefndar skal færa í gerðabók númer fundar, hvar og hvenær fundur er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðarbók dagskrá fundar, upphafstíma fundar og fundarslit. Viðstaddir fundarmenn skulu rita nöfn sín í gerðabók í fundarlok. Gerðabók skal geymd á skrifstofu sveitarfélagsins.
Formaður skal sjá um að fundargerð sé send sveitarstjórn til staðfestingar og öllum sem seturétt hafa á skólanefndarfundum.
Um hæfi og skyldur skólanefndarmanna og annarra fundarmanna
11.gr.
Um hæfi skólanefndarmanna gilda ákvæði 19. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, II. kafli stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og Samþykkt um stjórn og fundarsköp Svalbarðsstrandarhrepps.
12.gr.
Nefndarmönnum er skylt að sækja alla fundi skólanefndar nema lögmæt forföll hamli. Sé skólanefndarmaður forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til formanns.
Nefndarmaður skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna, samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst áfram eftir að nefndarmaður lætur af þeim störfum. Þetta ákvæði á einnig við um áheyrnarfulltrúa og aðra fundarmenn.
Ráðningar starfsfólks
13.gr.
Sveitarstjórn ræður skólastjóra að fenginni umsögn skólanefndar.
14.gr.
Skólastjóri ræður kennara og annað starfsfólk skóla að höfðu samráði við skólanefnd.
Málsmeðferðarreglur skólanefndar
15. gr.
Við meðferð mála hjá skólanefnd, er varða réttindi og skyldur aðila, skal gæta ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Gildi samþykktarinnar
16.gr.
Samþykkt þessi tekur gildi með staðfestingu sveitarstjórnar 14. apríl 2009.