Niðurgreiðsla þátttökugjalda barna og unglinga í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi fyrir árið 2011.
Úthlutunarreglur
Markmið.
Að auka möguleika barna- og unglinga í Svalbarðsstrandarhreppi til þátttöku í skipulögðu
íþrótta- og tómstundastarfi óháð efnahag fjölskyldna og ýta með því undir aukna hreyfingu og
félagsþátttöku þeirra.
Framkvæmd.
Svalbarðsstrandarhreppur tilkynnir foreldrum barna á grunnskólaaldri að gegn framvísun kvittunar á skrifstofu
sveitarfélagsins, um greiðslu þátttökugjalds fyrir einstakling á aldrinum 6 til 15 ára, leggi sveitarfélagið samþykkta
niðurgreiðslu inn reikning viðkomandi. Ákvörðun um fjárhæð niðurgreiðslu er ákveðin í lok árs fyrir komandi
ár.
Niðurgreiðslan nær ekki til greiðslu fyrir aðbúnað, ferðalög eða annan tilfallandi kostnað vegna keppni eða þjálfunar.
Þá getur niðurgreiðslan aldrei orðið hærri en þátttökugjald viðkomandi einstaklings.
Skilgreining á íþrótta- og tómstundastarfi sem gefur rétt til niðurgreiðslu.
Þau félög sem veita rétt til niðurgreiðslu eru:
Umf. Æskan
Öll aðildarfélög UMSE, ÍBA og HSÞ
Skátafélagið Klakkur
Myndlistaskólar á Akureyri
Dansskólinn Point
Félögin þurfa að reka starfsemi sína á ársgrundvelli og einstök tilboð að standa eigi skemur en eina önn. Niðurgreiðslan
nær ekki til tónlistarnáms þar sem boðið er upp á það við Valsárskóla og það niðurgreitt af
sveitarfélaginu.
Ef upp koma vafaatriði er viðkomandi bent að hafa samband við sveitarstjóra.
Ákveðið hefur verið að greitt verði allt að kr. 11.000,- fyrir einstakling á aldrinum 6 til 15 ára fyrir árið 2011.
[Samþykkt á 8. fundi sveitarstjórnar þann 21.12.2010]


