Fyrirkomulag sorphirðu
Sorphirða í Svalbarðsstrandarhreppi er í höndum Vegbúans ehf, samkvæmt þjónustusamningi frá maí 2010. Sorphirðan er tvíþætt, annars vegar söfnun almenns sorps á 2 vikna fresti og hins vegar söfnun endurvinnanlegs úrgangs á fjögurra vikna fresti. Sorpi er safnað á fimmtudögum, nema fimmtudagurinn sé almennur frídagur eða ef veður hamlar sorphirðu.
Svalbarðsstrandarhreppur leggur íbúum til endurvinnslutunnuna og sorppoka fyrir almennt sorp. Vegbúinn ehf. sér um dreifingu sorppokanna. Hafið samband við skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps ef endurvinnslutunnu vantar. Húseigendur/íbúar leggja sjálfir til tunnur fyrir almenna sorpið.
Sorpgámar eru staðsettir á tveimur stöðum í sveitarfélaginu. Gámarnir eru ætlaðir öllum þeim sem borga sorphirðugjald í sveitarfélaginu, þ.e. heimilum, sveitabæjum og notendum frístundahúsa. Á gámasvæði í Kotabyggð (við Veigastaðaveg) er gámur fyrir almennt sorp. Á gámasvæðinu við ráðhúsið eru gámar fyrir almennt sorp, brotamálma, timbur, dagblöð og bylgjupappa. Þeir sem setja rusl í gámana eru beðnir að flokka rétt svo ávinningurinn af flokkuninni tapist ekki.
Fyrirtæki sjá sjálf um að skila sorpi til viðurkenndra mótttökuaðila og greiða fyrir sorpförgun. Þó geta fyrirtæki samið við sveitarfélagið um sorpförgun gegn gjaldi sem tekur mið af magni þess sorps sem fellur til hjá viðkomandi fyrirtæki. Óskum um samning skal beina til sveitarstjóra.
Bæklingur um endurvinnslu (pdf skjal)Sorphirðudagatal janúar til júní 2013 (pdf skjal)
Endurvinnslutunnan (nokkur dæmi um flokkun) (pdf skjal)




