Sveitarfélagið Svalbarðsstrandarhreppur er á Svalbarðsströnd, undir hlíðum Vaðlaheiðar við austanverðan Eyjafjörð. Sveitin er um 14
km frá norðri til suðurs. Undirlendi er lítið syðst og þar setja hjallar sterkan svip á landslagið. Er undirlendi talsvert þegar utar dregur.
Landnámsjörð sveitarinnar er Sigluvík þar sem Norðmaðurinn Skagi Skoptason nam land að ráði Helga magra. Ströndin hefur ætíð
tilheyrt S-Þingeyjarsýslu. Mörg undanfarin ár hefur íbúum fjölgað og þann 1. desember 2009 voru þeir 410 (bráðab.tala). Um
helmingur íbúa eða 190 býr í þéttbýlinu á miðri ströndinni, Svalbarðseyri. Þar hafa oft á tíðum
verið töluverð umsvif og ýmsir aðilar verið þar með rekstur eins og verslun og síldarsöltun að ógleymdum umsvifum Kaupfélags
Svalbarðseyrar, KSÞ. Í dag er Kjarnafæði með mikla starfsemi þar. Í þéttbýlinu er grunn- og leikskóli,
íþróttaaðstaða, sundlaug og skrifstofa hreppsins. Á síðustu árum hefur verið ásókn í búsetu syðst í
hreppnum. Bæði er um að ræða frístundahús og íbúðarhús til fastrar búsetu. Nábýlið við Akureyri gerir
það að verkum að íbúar sækja mikið í þjónustu þangað en samstarf er mikið á milli sveitarfélaganna,
báðum til hagsbóta.
Flýtilyklar
Um Svalbarðsstrandarhrepp
Á næstunni
13.03.2012


