Valsárskóli er á Svalbarðsströnd í Suður-Þingeyjarsýslu, við austanverðan Eyjafjörð. Skólahverfið liggur frá Veigastöðum í suðri til Garðsvíkur í norðri. Nemendur í skólanum eru 42. Kennt er í þremur deildum; 1.-4. bekk, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk.
Boðið er upp á skólavistun fyrir nemendur í 1.-4. bekk, auk þess sem boðið er upp á skipulagt félagsstarf utan skólatíma (félagsmiðstöð).
Skólastjóri Valsárskóla: Einar Már Sigurðarson
Heimasíða: http://www.svalbardsstrond.is/valsarskoli
Símanúmer: 462 3104
Netfang: valsar@valsar.is
Húsvörður: 862 3104




