Svalbarðsstrandarhreppur

Vefsvæði Svalbarðsstrandarhrepps.

Vinnuskóli

Svalbarðsstrandarhreppur starfrækir vinnuskóla á sumrin fyrir unglinga á aldrinum 14-16 ára. Vinnuskólinn hefur að leiðarljósi að skapa hollt og uppbyggjandi sumarstarf fyrir unglinga á aldrinum 14 – 16 ára (nemendur sem lokið hafa 8. – 10. bekk). Reynt er að hafa sumarstörfin eins fjölbreytt og frekast er unnt, en fyrst og fremst er um að ræða umhverfisverkefni af ýmsum toga s. s. slátt og hirðingu lóða og opinna svæða, hreinsun rusls af vegsvæðum og víðar o. s. frv.

Í starfi skólans er leitast við að unglingarnir kynnist þeim skyldum, sem því fylgir að taka þátt í atvinnulífi og að gera þá hæfari til starfa á almennum vinnumarkaði. Þeim er kennd notkun þeirra verkfæra, sem nauðsynleg eru og notast við þau verkefni, sem á hverjum tíma er unnið að. Þannig öðlist unglingarnir reynslu af verklegum störfum, sem að gagni getur komið síðar meir.

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning