Skólasetning
Fimmtudaginn 23. ágúst nk. verður Valsárskóli settur á Sal skólans klukkan 16:00.
Að lokinni setningu fara nemendur og forráðamenn þeirra í kennslustofur á
fund umsjónarkennara og fá þar hagnýtar upplýsingar í skólabyrjun.
Á Skála bíður síðan kaffihlaðborð sem elstu nemendur skólans sjá um með aðstoð
aðstandenda og verða veitingar seldar á vægu verði.

