Byrjendalæsi var tekið upp við skólann haustið 2011 og er þróað í samvinnu við Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.
Byrjendalæsi er samvirk kennsluaðferð ætluð til lestrarkennslu barna í 1. og 2. bekk en aðferðin hefur einnig verið notuð með eldri nemendum. Við samsetningu Byrjendalæsis var aðallega stuðst við kenningar Gudschinsky, Frost, Rumelhart, Solity og Leimar. Ennfremur var sótt til ýmissa annarra fræðimanna um læsi og til NRP2000 rannsóknarinnar þar sem kemur fram mikilvægi þess að kennsluaðferðir í læsi feli í sér nálgun sem nái til allra þátta móðurmálsins. Þannig er vinna með tal, hlustun, lestur og ritun felld í eina heild undir hatti læsis. Ennfremur eru sértækir þættir móðurmálsins, svo sem hljóðvitund, réttritun, skrift, orðaforði, setningabygging og málfræði tengd inn í ferlið.
Meginmarkmið Byrjendalæsis er að börn nái góðum árangri í læsi sem allra fyrst á skólagöngu sinni. Þegar börn hefja nám í 1. bekk eru þau misjafnlega á vegi stödd. Sum þekkja stafi, önnur eru farin að lesa og svo er hópur sem þarf að læra alla stafina og hvernig á að vinna með þá. Byrjendalæsi gerir ráð fyrir því að hægt sé að kenna börnum sem hafa ólíka færni í lestri hlið við hlið og því er lögð áhersla á hópvinnu um leið og einstaklingsþörfum er mætt.
Sjá upplýsingar til foreldra: /static/files/Valsarskoli/Foreldrablad%20byrjendalaesi.pdf
Uppfærður: Einar Már Sigurðarson-þri 9.okt 2012

