Eineltisáætlun Olweusar í Valsárskóla
Við sættum okkur ekki við einelti
Í Valsárskóla er unnið gegn einelti samkvæmt áætlun sem kennd er við Dan Olweus. Eineltisáætlun Olweusar er forvarnaráætlun sem hefur það að markmiði að koma í veg fyrir einelti og andfélagslega hegðun og skapa þannig skólabrag að einelti sé ekki liðið. Umsjónarkennarinn gegnir þar lykilhlutverki.
Hvað er einelti?
Samkvæmt skilgreiningu Olweusar kallast það einelti þegar nemandi er tekinn viljandi fyrir af einum eða fleirum með síendurtekinni stríðni, látbragði, niðrandi ummælum og sögusögnum, andlegri kúgun, hótunum af ýmsu tagi sem koma þolanda illa, líkamlegri misbeitingu, félagslegri höfnun, markvissri einangrun eða útskúfun.
Afleiðingar eineltis geta verið mjög alvarlegar. Barn sem lagt er í einelti verður hrætt, öryggislaust, einmana og tortryggið gangvart félögunum. Sjálfstraust þess minnkar, það einangrar sig og verður jafnvel veikt án sýnilegra sjúkdóma. Langvarandi einelti veldur streitu sem getur leitt til námsvandamála, neikvæðrar hegðunar, lystarleysis og þunglyndis (Olweus handbók).
Meðferð eineltismála í Valsárskóla
1. Tilkynning
Vakni grunur um einelti skal gera umsjónarkennara þolanda / geranda grein fyrir málinu.
2. Upplýsingaöflun
Umsjónarkennari leitar eftir nánari upplýsingum sem víðast, t.d. hjá starfsfólki skólans, nemendum og foreldrum. Umsjónarkennari getur lagt fyrir tengslakönnun, tekið viðtöl við nemendur, ráðfært sig við samstarfsfólk t.d. skólastjórnendur, námsráðgjafa og skólasálfræðing ofl.
3. Aðgerðir
Meti umsjónarkennari að lokinni slíkri athugun að um einelti sé að ræða gerir hann foreldrum/forráðamönnum þeirra aðila sem hlut eiga að máli grein fyrir stöðunni. Foreldrum er kynnt vinnuferli skólans í eineltismálum og óskað eftir samvinnu við að uppræta eineltið. Þegar það á við gerir umsjónarkennari stjórnendum, eineltisteymi, kennurum og starfsmönnum sem að málinu koma viðvart. Ætíð skal þolanda/þolendum tryggt öryggi eftir því sem kostur er og honum gerð grein fyrir að einelti sé ekki liðið og það verði stöðvað.
4. Alvarleg viðtöl við gerendur
• Gerandi kallaður í viðtal um leið og athugun hefur farið fram.
• Foreldrar geranda upplýstir um að viðtal eigi að fara fram og boðið að vera viðstödd.
• Umsjónarkennari stýrir viðtalinu. Æskilegt er að hann hafi einhvern sem hann treystir með í viðtalinu.
• Umsjónarkennari sýnir myndugleika í viðtalinu og gefur skýrt til kynna að hann hafi upplýsingar um málið, einelti sé ekki liðið í skólanum og að það verði stöðvað.
• Nauðsynlegt er að umsjónarkennari haldi sig ávallt við efnisatriði, tali um staðfesta atburði og láti alls ekki draga sig út í umræður um ranglæti sem gerandi hefur e.t.v. orðið fyrir.
• Vera ætíð hvetjandi gagnvart geranda, aldrei niðurlægjandi. Láta geranda finna að umsjónarkennari hefur fulla trú á að viðkomandi geti breytt hegðun sinni. Gæta þess að dæma ekki persónu geranda heldur hafna hegðun hans.
• Láta geranda vita að fylgst verði með málum, þ.e. að gerandi verði undir ströngu eftirliti og annað viðtal muni fara fram innan skamms.
• Standa við það sem sagt er og fylgja málum eftir.
• Skrá öll viðtöl.
Umsjónarkennari getur hvenær sem er vísað málinu til eineltisteymis, í því eru skólastjórnandi (Einar Már Sigurðarson), námsráðgjafi (Helga Magnea Steinsson), kennari (ekki umsjónarkennari) (Einar Bjaki Sigurjónsson) og fulltrúi annarra starfsmanna (Valborg Stefanía Karlsdóttir). Eineltisteymið tekur þá við stjórn málsins og vinnur með umsjónarkennara að lausn þess. Sú vinna felur í sér einstaklingsviðtöl og fundi með foreldrum aðila. Eineltisteymið setur sér nánari verklagsreglur.
Náist ekki árangur hjá aðilum innan skólans við að uppræta eineltið ber skólanum að leita eftir aðstoð frá sérfræðingum utan hans.
Rétt er að leggja á það áherslu að hvert eineltismál er sérstakt og vinnan við það verður að miðast við eðli málsins hverju sinni.
Allir foreldrar/forráðamenn nemenda fá handbók þar sem farið er í aðgerðaráætlun Olweusar.
Uppfærður: Einar Már Sigurðarson-mán 17.sep 2012

