Fundur skólaráðs Valsárskóla haldinn 20. febrúar 2012 kl. 16:00. Á fundinn mættu: Einar Már Sigurðsson, skólastjóri, Arndís Sigurpálsdóttir og Edda Línberg Kristjánsdóttir, fulltrúar kennara, Valborg Stefanía Karlsdóttir, fulltrúi starfsmanna, Gabríel Goði Caceres fulltrúi nemenda en hinn nemendafulltrúinn, Einar Hákon Jónsson hafði boðað forföll og fulltrúar foreldra, Svala Einarsdóttir og Starri Heiðmarsson er ritaði fundargerð.
1. Verkefni skólaráðs kynnt fyrir nýjum meðlimum skólaráðs.
2. Kosning fulltrúa grenndarsamfélagsins. Þar sem kjörtímabili Magnhildar Sigurðardóttur, fráfarandi fulltrúi grenndarsamfélagsins er lokið þá þarf að kjósa nýjan fulltrúa fyrir grenndarsamfélagið. Eftir nokkrar umræður var stungið upp á Guðfinnu Steingrímsdóttur. Einar Már mun hafa samband við Guðfinnu.
3. Skólastefna sveitarfélagsins er í vinnslu og mun koma til umsagnar hjá skólaráði.
4. Valárskóli hefur sótt um að verða heilsueflandi grunnskóli og mun skólaráð starfa sem stýrihópur þess verkefnis.
5. Skóladagatal fyrir 2012-2013 kynnt.
Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl. 17:10.
Uppfærður: Einar Már Sigurðarson-fös 2.mar 2012

