Valsárskóli

Vefsvæði Valsárskóla

Fundargerð 20.03.12

Fundur haldinn 16. mars 2012 kl. 10:30
Mættir:  Helgi Viðar, Linda, Valgeir, Dagbjört, Magnús og Auður.
Linda las síðustu fundargerð.
Helgi Viðar fór yfir það sem hefur verið gert.  
  • Farið er að nota rafrænar námsbækur í einhverjum fögum í elstu árgöngunum.  
    
  • Komið hefur sú hugmynd að halda íslenskar landnámshænur-gefa þeim úrgang úr eldhúsinu og fá egg í staðinn!  
    
  • Minna þarf á að flokka rétt og þá væri tilvalið að óska eftir hugmyndum um verkefni (umsjónarkennari og fulltrúar í nefndinni gætu gert það).  
    
  • Varðliðar umhverfisins er verkefni fyrir 5.-10. bekk, sem gaman væri að starta hér.  
    
Linda kom með hugmynd að myndakeppni eða -sýningu (náttúrumyndir).  Auður vildi að við hengdum upp plaköt t.d. 
til að upplýsa gesti hvað við værum að rækta. Hún vildi að við ræktuðum ananas. Linda sagði frá því að í Stórutjarnarskóla eru haldin 
umhverfisþing fyrir íbúana og fengnir eru fyrirlesarar og hefur þetta gefist vel.  Stefna skólans að verða lýðheilsuskóli er gott grænt 
verkefni.  Einnig rætt um fugla og fleira.
Fundi slitið kl. 11:15.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning