Fundur skólaráðs Valsárskóla haldinn 20. júní 2012 kl. 16:00. Á fundinn mættu: Einar Már Sigurðarson, skólastjóri, Arndís Sigurpálsdóttir og Edda Línberg Kristjánsdóttir, fulltrúar kennara, Valborg Stefanía Karlsdóttir, fulltrúi starfsmanna, Guðfinna Steingrímsdóttir, fulltrúi grenndarsamfélagsins og fulltrúar foreldra, Svala Einarsdóttir og Starri Heiðmarsson er ritaði fundargerð.
1. Skóladagatal sem kynnt var fyrir skólaráði á síðasta fundi þess hefur tekið litlum breytingum en þó hafa nokkrar breytingar verið gerðar í sambandi við námsmatsdaga í nóvember og mars. Á þessu skólaári mun kennsla hefjast 24. ágúst.
2. Einar Már kynnti niðurstöður á ytra mati skólastarfs Valsárskóla og umbætur sem ráðast þyrfti í til að bregðast við ytra matinu og á hvers ábyrgð einstakir umbótaþættir væru.
3. Starfsáætlun skólaráðs. Í ytra matinu kom í ljós að Skólaráð hefur ekki sinnt þeirri skyldu sinni að vinna samkvæmt samþykktri starfsáætlun. Skólaráð ákvað því starfsáætlun fyrir næsta skólaár og hljóðar hún svo:
Á starfsárinu verða haldnir a.m.k. tveir skólaráðsfundir, annar fljótlega eftir aðalfund foreldrafélags Valsárskóla þegar ljóst er hverjir verða fulltrúar forelda en hinn seinnihluta skólaárs. Skólaráð stendur fyrir einum opnum fundi á hverju skólaári.
4. Önnur mál voru engin.
Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl. 17:07
Uppfærður: Einar Már Sigurðarson-mán 25.jún 2012

