Þann 29. maí 2008 fékk Valsárskóli viðurkenningu Landverndar, Grænfánann.
Þetta er umhverfismerki sem víða nýtur virðingar sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Fáninn er afhentur til tveggja ára í senn. Mikill metnaður og vilji er í Valsárskóla til að standa vel að umhverfismálum og viðhalda viðurkenningunni með því að geta flaggað fánanum eftirsótta áfram. Við þessi tímamót er kosið í nýja umhverfisnefnd skólans til næstu tveggja ára sem m.a. viðheldur þeim árangri sem hefur náðst, endurmetur stöðu umhverfismála í skólanum og setur sér ný markmið að stefna að á tímabilinu. Vorið 2010 var viðurkenningin endurnýjuð til tveggja ára og aftur haustið 2012.
Markmið verkefnisins er að:
• Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
• Efla samfélagskennd innan skólans.
• Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
• Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
• Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.
• Efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu.
• Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning.
Umhverfissáttmáli Valsárskóla
Valsárskóli vill stuðla að góðri umgengni og verndun umhverfis.
Við viljum nýta vel það sem við höfum og koma þannig í veg fyrir sóun og eyðslu. Fræðsla í skólanum stefnir að því að auka umhverfisvitund og ábyrgð nemenda á nýtingu auðlegða jarðar sem geta gengið til þurrðar.
Markmiðið er að hver og einn finni til ábyrgðar á umgengni sinni og neyslu og öðlist skilning og virðingu fyrir lögmálum náttúrunnar.
Fimm meginmarkmið skólans eru:
- að vera umhverfisvæn
- að flokka eftir kröfum móttökustöðva á svæðinu
- að spara pappír og endurnýta
- að minnka notkun á einnota umbúðum
- að kynna lýðræðisleg vinnubrögð, fundarsköp, ákvörðunartöku og verkaskiptingu
Vefur Landverndar, landvernd.is gefur góðar upplýsingar um umhverfisvernd og verkefnið. Eins gefur vefur Sorpu, sorpa.is upplýsingar um flokkun og endurvinnslu.
Uppfærður: Einar Már Sigurðarson-mán 17.sep 2012

