Námsmat
Námsmat skiptist í tvennt annarsvegar hæfni og frammistaða og hinsvegar lykilhæfni sem skiptist í marga þætti, ekki eru sömu þættir lykilhæfni metnir hjá öllum aldurshópum.
Hjá 1. – 4. bekk eru þessir þættir lykilhæfni metnir: Dugnaður og þrautseigja , jákvæðni og framkomu, samskipti og samstarf.
Hjá 5. – 7. bekk eru þessir þættir lykilhæfni metnir: Ábyrgð, dugnaður og þrautseigja, jákvæðni og framkoma, samskipti og samstarf, námsvitund.
Hjá 8. – 10. bekk eru þessir þættir lykilhæfni metnir: Ábyrgð, dugnaður og þrautseigja, jákvæðni og framkoma, samskipti og samstarf, námsvitund, tjáning.
Hæfni og frammistaða
Hæfni nemenda, leikni og skilningur innan hverrar námsgreinar, jafnt í bóklegu námi, verk- og listnámi.
Kvarði
A Framúrskarandi hæfni og frammistaða í námsgreinar.
B Góð hæfni og frammistaða í í námsgreinar.
C Sæmileg hæfni og frammistaða í í námsgreinar.
D Hæfni og frammistöðu í í námsgreinar ábótavant.
LYKILHÆFNI
Lykilhæfni í námsgrein:
ÁBYRGÐ ( 5. – 7. b. og 8. – 10. b.)
Axlar ábyrgð á námi sínu, tekur leiðsögn, fylgir fyrirmælum og mætir námskröfum. Lýkur vinnu í skóla og heima. Nýtir tímann vel. Skilar verkefnum á réttum tíma.
DUGNAÐUR OG ÞRAUTSEIGJA (allir)
Er duglegur í námi. Sýnir þrautseigju og gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana þegar verkefni eru erfið og krefjandi.
FRUMKVÆÐI OG ÁRÆÐNI ( 5. – 7. b. og 8. – 10. b.)
Sýnir frumkvæði og áræðni í krefjandi námsaðstæðum. Er óhræddur við að spyrja spurninga. Leitar lausna og beitir skapandi hugsun í efnistökum og úrvinnslu. Er áhugasamur og nálgast ný verkefni með jákvæðu viðhorfi. Leitar að nýjum hugmyndum og tækifærum til náms.
JÁKVÆÐNI OG FRAMKOMA (allir)
Er jákvæður og kurteis. Sýnir tillitssemi og hjálpsemi. Berst fyrir að allir fái þarfir sínar uppfylltar. Gerir ekki lítið úr öðrum heldur tekur tillit til veikleika þeirra. Gleði og bjartsýni einkenna framkomu.
SAMSKIPTI OG SAMSTARF (allir)
Byggir upp heilbrigð persónuleg samskipti, þar með talin netsamskipti. Hlustar á aðra. Virðir skoðanir, gildi og viðhorf annarra. Leitar lausna á ágreiningi og vinnur að sameiginlegri niðurstöðu með öðrum. Virkur í samstarfi og tekur að sér mismunandi hlutverk í hópavinnu. Tekur réttmætri gagnrýni og nýtir sér til þroska.
NÁMSVITUND ( 5. – 7. b. og 8. – 10. b.)
Setur sér markmið. Býr til og fylgir áætlunum. Forgangsraðar og ætlar sér tíma til að ljúka verkefnum. Metur á gagnrýninn hátt eigin vinnubrögð og árangur. Lærir af reynslunni og aðlagar skipulag og vinnubrögð til að ná betri árangri.
TJÁNING (8. – 10. b.)
Tekur þátt í samræðum og rökræðum. Tjáir hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir munnlega, skriflega og á annan hátt. Miðlar þekkingu og leikni sinni og flytur mál sitt skýrt og áheyrilega.
Kvarði
A Framúrskarandi hæfni með hliðsjón af viðmiðum um lykilhæfni.
B Góð hæfni með hliðsjón af viðmiðum um lykilhæfni.
C Sæmileg hæfni með hliðsjón af viðmiðum um lykilhæfni.
D Hæfni með hliðsjón af viðmiðum um lykilhæfni ábótavant.
Uppfærður: Einar Már Sigurðarson-mán 5.mar 2012

