Valsárskóli

Vefsvæði Valsárskóla

Opið hús

Opið hús er fyrir nemendur í 8. - 10. bekk og fer yfirleitt fram í skólanum á miðvikudagskvöldum frá kl. 19:00 til kl. 21:30, 7. bekkur er oft með á opnu húsi.

Dagskrá opinna húsa er að mestu leyti skipulögð af nemendum í samráði við umsjónarmann. Í þeim tilvikum sem farið er „af bæ“ er oft leitað til foreldra um akstur. Einhver námskeið eru á hverju ári og eru þau auglýst sérstaklega.

Opið hús fyrir yngri nemendur er yfirleitt einu sinni í mánuði þó ekki í desember og maí. Eldri nemendur sjá um skemmtanir þeirra ásamt umsjónarmanni.

Samvinna er við nágrannaskóla (Samskólana) um sameiginleg böll fyrir nemendur í 8. - 10. bekk.

Mynd augnabliksins

p5070464__medium_.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning