Þegar náttúruöflin taka til sinna ráða hvort heldur er óveður, ófærð eða önnur vá og nauðsynlegt reynist að fella niður skóla er það tilkynnt með smsskeyti, tölvupósti og á heimasíðu.
Ef foreldrum sýnist veður svo slæmt að þeir treysta börnum sínum ekki í skólann er þeim heimilt að halda þeim heima. Þeir láta vita í skólann um ákvörðun sína og bílstjóra þar sem það á við. Sjálfsagt er að koma með börnin í skólann þegar veður eða færð lagast ef skólahald stendur þá enn yfir. Nemendur eru ekki sendir heim fyrir skólalok á óveðursdögum nema með vitund foreldra. Foreldrar eru beðnir að láta starfsfólk vita ef þeir sækja sín börn og/eða annarra í skólann í slæmum veðrum, sérstaklega ef það er gert fyrir áætluð skólalok.
Höfundur: Einar Már Sigurðarson - fös 9.des 2011
Uppfærður: Einar Már Sigurðarson-þri 29.jan 2013
Uppfærður: Einar Már Sigurðarson-þri 29.jan 2013

