Valsárskóli nýtur þjónustu Fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar. Námsráðgjafi/sérkennari og skólastjóri sjá um samskipti við deildina þ.e. við sérkennslufulltrúa, sálfæðinga og aðra fagaðila eftir þörfum. Námsráðgjafi/sérkennari og skólastjóri halda utan um fundi sem haldnir eru vegna einstakra nemenda. Forráðamenn nemenda geta án milligöngu skólans haft samband við Fjölskyldudeild Akureyrar vegna málefna sem varðar börn þeirra í skólanum.
Höfundur: Einar Már Sigurðarson - mán 12.des 2011
Uppfærður: Einar Már Sigurðarson-mán 12.des 2011
Uppfærður: Einar Már Sigurðarson-mán 12.des 2011

