Valsárskóli

Vefsvæði Valsárskóla

Símenntunaráætlun

Símenntunaráætlun

Símenntunaráætlunum má skipta í tvennt. Annars vegar er símenntunaráætlun skóla og hins vegar eru símenntunaráætlanir einstakra starfsmanna. Í áætlunum starfsmanna er ekki eingöngu miðað við þarfir skólans heldur einnig persónulegar þarfir og áhugamál.

Markmið Valsárskóla

Skólinn hvetur starfsfólk til stöðugrar þekkingarleitar.Skólinn leitast við að bjóða upp á metnaðarfullt starfsumhverfi. Skólinn styður eftir bestu getu starfsþroska einstaklinga. Skólinn leggur metnað í að skipuleggja og bjóða upp á fjölbreytt tækifæri til símenntunar.

Símenntunarform

Lögð er áhersla á að tengja saman formlega og óformlega fræðslu. Símenntun í Valsárskóla felst m.a. í:

  •        Námskeiðum og þjálfun á vegum ytri aðila
  •        Viðurkenndum ráðstefnum, kynnisferðum og málþingum
  •        Kennslu fyrir hópa starfsmanna eða alla
  •        Kynningum t.d. á fundum eða hluta funda
  •        Jafningjaráðgjöf, þar sem starfsmenn leiðbeina hverjir öðrum í starfi
  •        Lestri fræðilegs efnis ýmist einstaklingslega eða í leshringjum
  •        Formlegu viðbótarnámi/framhaldsnámi.

Framboð símenntunar

Reynt er að nýta sem best þekkingu/sérfræði einstaklinga í starfsmannahópnum. Þekking er sótt markvisst í samstarfi við aðra skóla eða stofnanir.  Þjónusta Skólaþróunarsviðs Háskólans á Akureyri er nýtt í samræmi við t.d. samning um Byrjendalæsi. Auk þess er keypt fræðsla eftir þörfum og framboði af háskólastofnunum, Mentor, auk ýmissa sérfræðinga innan og utan skólakerfisins.  Samstarf er við Samskólana um árlegan sameiginlegan fræðsludag og reglulegar skólaheimsóknir erlendis.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning