Valsárskóli

Vefsvæði Valsárskóla

Skólaferðalag

Skólaferðalag 9. og 10 bekkjar fellur ekki undir skólaskyldu heldur er ánægjulegt samstarfsverkefni nemenda, forráðamanna þeirra og skóla.

Sú venja hefur skapast að nemendur þessara árganga fari annað hvert ár í ferðalag (næst vorið 2014). Það er ákvörðun hvers hóps í samráði við foreldra hvert er farið hverju sinni en allur undirbúningur tekur mið af þeirri ákvörðun. Undirbúningur og ferðalagið er skipulagt í samstarfi forráðamanna nemendahópsins, nemendaráðs fyrir hönd nemenda og starfsmanna frá skólanum.

Fjáröflun vegna ferðalagsins tekur tvö ár og vinna nemendur að henni með aðstoð forráðamanna sinna og skólans.

Áður en farið er í skólaferðalag skrifa nemendur og forráðamenn þeirra undir samning um hegðun og ábyrgð nemandans í ferðinni og samþykkja afleiðingar ef samningurinn er brotinn.

Mynd augnabliksins

p5070465__medium_.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning