Valsárskóli

Vefsvæði Valsárskóla

Skólahald á Svalbarðsströnd

Valsárskóli er á Svalbarðsströnd í Suður-Þingeyjarsýslu, við austanverðan Eyjafjörð. Þaðan eru um 12 kílómetrar til Akureyrar. Skólahverfið liggur frá Veigastöðum í suðri til Garðsvíkur í norðri.

Valsárskóli er fámennur skóli með samkennslu nemenda. Nemendafjöldinn hefur sveiflast nokkuð frá um 80 í rúmlega 40 nemendur. Fjöldi stöðugilda breytist í takt við nemendafjöldann hverju sinni. Í Valsárskóla eru nú 49 nemendur í þremur bekkjardeildum, í 1. - 4. bekk 24 nemandi, í 5. - 7. bekk 14 nemendur og í 8. - 10. bekk 11 nemendur.

Árið 2003 var stofnuð tónlistardeild við skólann og haustið 2009 var deildinni breytt í sjálfstæðan Tónlistarskóla.
Haustið 2008 tók til starfa skólavistun fyrir nemendur í 1. - 4. bekk.

Saga skólahalds á Svalbarðsströnd nær samkvæmt heimildum aftur til ársins 1902. Farskóli var rekinn frá því að fræðslulögin voru sett 1907 og fram til ársins 1922 þegar lokið var við byggingu samkomuhúss hreppsins sem nýtt var sem skólahús á vetrum til ársins 1970. Þá var skólahald flutt í nýtt skólahúsnæði en kennsla unglingastigs og íþróttakennsla fór fram á Hrafnagili í Eyjafirði og var nemendum ekið þangað daglega. Sundkennsla fór þó fram í sundlaug Svalbarðsstrandarhrepps sem byggð var 1931 og er svo enn. Svalbarðsstrandarhreppur tók þátt í uppbyggingu skólahúsnæðis á Hrafnagili en mikill hugur var í heimamönnum um byggingu íþróttahúss á heimastað og að grunnskólakennsla sveitarinnar færi öll fram á heimavettvangi. Árið 1995 var flutt í nýtt skólahúsnæði og íþróttahús. Nýi grunnskólinn fékk nafnið Valsárskóli.
Stærstur hluti eldra húsnæðis var tekinn undir rekstur leikskólans Álfaborgar. Talsverð samvinna er á milli skólastiganna og aðstæður til þess góðar vegna nálægðar skólanna. Árið 2004 var tekin í notkun 420 fermetra viðbygging við skólann og árið 2005 voru verkmenntastofur í gamla skólahúnæðinu í Álfaborg endurgerðar ásamt skólaleikvelli með nýjum leiktækjum. Sparkvöllur við skólann var tekinn í notkun haustið 2008. Skólahúsnæðið telur alls um 1715 fermetra og hluti þess er jafnframt nýttur sem félagsaðstaða sveitarfélagsins.

Arkitektar Valsárskóla eru tveir. Bárður Daníelsson hóf vinnuna en við skipulagningu og hönnun innanhúss tók Sigríður Sigþórsdóttir hjá VA arkitektum ehf en hún er einnig arkitekt viðbyggingar.

Mynd augnabliksins

p5150398__medium_.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning