Valsárskóli

Vefsvæði Valsárskóla

Uppbyggingarstefnan

Valsárskóli hefur skipað sér í hóp þeirra skóla sem starfa undir merkjum Uppbyggingastefnunnar. Formlega var það gert skólaárið 2008-2009. Starfsmenn skólans hafa sótt sér fræðslu um þessa aðferðafræði og foreldrum hefur verið boðið til kynningarfundar.

Einkunnarorð Uppbyggingastefnunnar eru uppeldi til ábyrgðar – uppbygging sjálfsaga.

Stefnan  leggur áherslu á virðingu einstaklingsins fyrir sjálfum sér og umhverfi sínu og samræmist því einkar vel gildum skólans og sýn, grenndarkennslu og vinnu nemenda, starfsmanna og foreldra með Grænfánaverkefnið.

Leiðarljósið er jákvæð ögun byggð á sjálfstæðum einstaklingum.

Vinnuaðferðirnar beinast að samskiptum allra þeirra sem koma að skólavinnu í samfélaginu, samstarfi starfsmanna, samstarfi nemenda, samstarfi aðstandenda og samstarfi á milli þessara hópa. Sjálfsagi er lykilatriðið óháð því hvaða hópi einstaklingurinn tilheyrir. Það er lögð áhersla á að verkaskipting í skólasamfélaginu sé skýr og að einstaklingar fái skýr skilaboð um hvert hlutverk þeirra er.

Brautryðjandi þessarar stefnu hér á landi, Magni Hjálmarsson, heldur úti heimasíðu (http://www.sunnuhvoll.com/) þar sem áhugasamir geta fræðst um markmið og leiðir Uppbyggingastefnunnar. Þar er höfundi stefnunnar getið með eftirfarandi hætti:

Diane Gossenfrá Kanada er höfundur aðferðarinnar og hefur hún unnið með kennurum víða um heim í rúm tuttugu ár, einkum þó í Kanada og Bandaríkjunum, við að þróa hagnýtar leiðir fyrir skóla sem miða að því að ná þessu marki með því að hinir fullorðnu í skólanum byrja á sjálfum sér við að skapa samheldinn og umhyggjusaman skólabrag.

Auk þess eru víða á alnetinu upplýsingar um framgang þessarar stefnu og upplýsingar frá íslenskum skólum þar sem eftir henni er farið.

Mynd augnabliksins

p5070453__medium_.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning