Skipulags & Byggingarmál

Drög að nýju íbúahverfi á Svalbarðeyri - teikningar

Sveitarstjórn fjallar um skipulagsmál í Svalbarðsstrandarhreppi.

Í Svalbarðsstrandarhreppi er í gildi aðalskipulag fyrir sveitarfélagið sem gert var fyrir tímabilið 2008-2020. Í því er að finna stefnu sveitarstjórnar varðandi landnotkun í sveitarfélaginu.

Sveitarstjórn fundar að jafnaði hálfs mánaðarlega, á þriðjudögum. Þeim sem eiga erindi við sveitarstjórn er bent á að senda erindi sín inn nokkru fyrir áætlaðan fund svo tími gefist til að undirbúa málin til afgreiðslu. Jafnframt er bent á mikilvægi þess að erindum fylgi öll fullnægjandi gögn.

Í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar má skoða Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 og flest þeirra deiliskipulaga sem í gildi eru.

Svalbarðsstrandarhreppur á map.is.


Skipulags- og byggingarfulltrúi

Embætti skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar er sameiginlegt með Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhrepp, Grýtubakkahrepp og Hörgársveit. Skipulags- og byggingarfulltrúi fer með byggingareftirlit, hefur eftirlit með byggingu húsa og mannvirkja og gefur út byggingarleyfi að lokinni afgreiðslu byggingarnefndar. Hann annast einnig skráningu fasteigna og lóða í fasteignaskrá.

Teikningar af byggingum eru aðgengilegar á vefnum map.is/eyjafjordur

Skrifstofa skipulags- og byggingarfulltrúa er staðsett á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9.
Netfang sbe hjá sbe.is.
Sími 463-0621 

Starfsfólk SBE er:
Vigfús Björnsson, skipulags- og byggingarfulltrúi

Jón Laxdal, verkefnastjóri byggingarmála

Jakobína Ósk Sveinsdóttir, verkefnisstjóri skrifstofu

Ása Dóra Finnbogadóttir, starfsmaður á skrifstofu

Umsóknir um byggingarleyfi

Sótt skal um byggingarleyfi á þar til gerðum eyðublöðum. Umsókn telst því aðeins gild að öll nauðsynleg fylgigögn skv. gr. 2.4.1. í byggingarreglugerð liggi fyrir. Byggingarfulltrúi veitir nánari upplýsingar um nauðsynleg fylgigögn. Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis er að bygg­ingar­nefnd hafi veitt henni samþykki sitt. Um byggingarleyfisskyldu vísast til kafla 2.3. í Byggingarreglugerð.
Ef mannvirki sem sótt er um er í samræmi við skipulag getur byggingarnefnd samþykkt umsóknina. Sé skipulagsheimild ekki fyrir hendi þarf umsækjandi að afla hennar frá Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps áður en umsókn um byggingarleyfi er tekin til afgreiðslu hjá byggingarnefnd.
Umsækjendur eru hvattir til að sækja um byggingarleyfi og skipulagheimildir tímanlega því nokkurn tíma getur tekið að afla umsagna og afgreiða umsóknir.


Efni yfirfarið 20.02.2024