Félagsmálanefnd

6. fundur 17. nóvember 2015 kl. 20:00
Nefndarmenn
  • Anna Karen Úlfarsdóttir formaður
  • Inga Margrét Árnadóttir aðalmaður
  • Gísli Arnarson aðalmaður
  • Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri. G
Starfsmenn
  • Gestir fundarins:
  • Anna María Snorradóttir
  • Sigríður Jónsdóttir.

Fundurinn var haldinn í Ráðhúsinu 17.11.2015 kl.20:00

Mættir voru Anna Karen Úlfarsdóttir formaður, Inga Margrét Árnadóttir aðalmaður, Gísli Arnarson aðalmaður og Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri. Gestir fundarins voru Anna María Snorradóttir og Sigríður Jónsdóttir.

Dagskrá:

1. 1407187 - Móta stefnu vegna þjónustu við eldri borgara, kanna hvar

brýnasta þörfin er og móta framtíðarsýn.

Anna María Snorradóttir kom á fyrri hluta fundarins og sagði frá starfinu sem er vikulega í safnaðarheimilinu. Þar hittist fólk 60 ára og eldra. Það starf snýst fyrst og fremst um samveru og spjall og eins er stefnt að göngutúrum í nágrenni kirkjunnar. Boðið hefur verið uppá jógatíma sem eru þá á undan samverustundinni. Formaður félagsmálanefndar stefnir að því að mæta á samverustund og ræða hvað hægt er að gera til að styrkja þetta starf.

Á seinni hluta fundarins kom Sigríður Jónsdóttir og ræddi um þörfina á heimahlynningu og aðkomu hennar að þeim málum.

Fundi slitið kl. 21:15