1. maí hlaup UFA

Verður haldið á Þórsvellinum, þ.e. frjálsíþróttavellinum við Bogann, á Akureyri, miðvikudaginn 1. maí og hefst kl 12:00

Leikskólahlaup: 400 m - einn hringur á vellinum

Grunnskólahlaup: Hægt að velja um 2 km eða 5 km.

5 km hlaup: Fyrir fólk á öllum aldri - verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í nokkrum aldursflokkum.

Allir skráðir þátttakendur fá verðlaunapening, pizzu frá Sprettinum og hressingu frá MS að hlaupi loknu.

Keppendur þarf að skrá á netinu fyrir keppnisdag, en keppnisgögn (númer) og sundmiðar verða afhent í Hamri þriðjudaginn 30. apríl milli kl. 16:00 og 18:00 og í Hamri á keppnisdag frá 9:30 - 11:30.

Hlaupið er keppni á milli grunnskóla þar sem keppt er um hlutfallslega þátttöku og sá skóli sem sigrar hlýtur verðlaunabikar.

Allir krakkar fá frítt í hlaupið, þökk sé Akureyrarbæ, Þelamerkurskóla, Eyjafjarðarsveit og Svalbarðsstrandarhrepp. Auk fyrrnefndra sveitarfélaga og skóla, styrkir Sprettur-inn, MS og stéttarfélögin á Eyjafjarðarsvæðinu hlaupið, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Frekari upplýsingar og myndir af hlaupaleiðum má finna hér: Nánari upplýsingar - 1. maí hlaup

Við hvetjum alla til að skrá sig og sína hérna: Skráning í 1. maí hlaup