Safnasafnsdagurinn í Valsárskóla

Í dag, síðasta vetrardag, var árlegur Safnasafnsdagur í Valsárskóla. Nemendur unnu í blönduðum hópum þvert á aldur við verkefnið ,,Skreytum skrjóðinn” sem fólst í því að skreyta gamlan bíl með ýmsu móti.

Nemendur völdu sér efnivið og bjuggu til úr honum litla skúlptúra sem verða í framhaldinu límdir á bílinn. Unnið var með notað efni s.s. víra, plast, leikföng, áldósir, gamla myndaramma og fleira. Þannig var dagurinn helgaður uppvinnslu og endurnýtingu. Einnig var málað munstur og myndir beint á bílinn.

Það verður spennandi þegar bílinn verður afhjúpaður 8. maí fyrir nemendur í Valsárskóla og svo verður í framhaldinu hægt að skoða hann á Safnasafninu í allt sumar.

Dagurinn var skemmtilegur eins og sést hér á myndum frá vinnu dagsins.