Verður haldið á Þórsvelli föstudaginn 1. maí. Frítt fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri.
Leikskólahlaup: 400 m fyrir börn fædd 2020 og síðar.
Grunnskólahlaup: Val milli 2 km eða 5 km.
Fólk á öllum aldri: 5 km hlaup.
Allir fá pizzusneið og hressingu að hlaupi loknu og frítt í sund daginn eftir!
Skráningarfrestur er til kl. 20:00 fimmtudaginn 30. apríl.
Keppnisgögn (númer) og sundmiðar verða afhent í Íþróttahöllinni fimmtudaginn 30. apríl milli kl. 16:00 og 20:00.
Athugið ekki verður hægt að sækja númer á hlaupdegi.
Skráning og nánari upplýsingar um hlaupið á www.ufa.is
Mikið verður um að vera á svæðinu, m.a. Öldungamót í blaki í Boganum, svo keppendur eru hvattir til að koma gangandi/hlaupandi/hjólandi á völlinn. Skiljum bílana eftir heima.
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801