1. maí hlaup UFA á Þórsvelli

1. maí hlaup UFA verður haldið á frjálsíþróttavellinum við Bogann á Akureyri og hefst kl. 12:00.

Allir krakkar fá frítt í hlaupið, ef þau eru skráð í forskráningu, þökk sé Akureyrarbæ, Þelamerkurskóla, Eyjafjarðarsveit og Svalbarðsstrandarhrepp. Auk fyrrnefndra sveitarfélaga og skóla, styrkir Sprettur-inn, MS, Sportver og stéttarfélögin á Eyjafarðarsvæðinu hlaupið, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Nánari upplýsingar og skráning á vef UFA.