Allir með - íþróttahátíð 22. mars á Akureyri

Sunnudaginn 22. mars frá kl. 14:00 - 15:15 verður íþróttahátíðin Allir með haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri.

Sóla lukkudýr og Hvolpasveitin taka þátt í æfingunum með þátttakendum og boðið verður upp á pítsur og ís.

Nánar má lesa um viðburðinn á facebooksíðu Allir með.

Hægt er að skrá sig í gegnum QR-kóðann á meðfylgjandi mynd, en einnig er velkomið að mæta án skráningar.

Öll með er íþróttahátíð fyrir börn með stuðningsþarfir á grunnskólaaldri. Öll fá að prófa íþróttir á sínum forsendum. Æfingarnar eru hugsaðar fyrir börn sem til dæmis þurfa meiri stuðning og hentar betur að vera í minni hópum. Börnin hafa aðgang að fleiri þjálfurum á æfingum á vegum Allir með og eru þeir á öllum aldri. Íþróttahátíðin fylgir markmiðum verkefnisins Allir með, sjá frekar á www.allirmed.com

Við hvetjum alla til að mæta, bæði þá sem búa á svæðinu og þá sem vilja fara í æfingarferð til Akureyrar, hitta fleiri og hafa gaman.