Auglýsing um framboð til sveitarstjórnarkosninga í Svalbarðsstrandarhreppi

Kjörstjórn Svalbarðsstrandarhrepps auglýsir eftir framboðslistum vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026.

Í ár verður meðmælasöfnun framboða rafræn í fyrsta sinn í mörgum sveitarfélögum, þar með talið í Svalbarðsstrandarhreppi. Kerfið opnaði fyrir söfnun meðmælenda 3. mars 2026.

Stjórnmálasamtök sem hyggjast bjóða fram þurfa að stofna rafræna meðmælasöfnun fyrir framboð sitt, en góðar leiðbeiningar um það er að finna hér: https://island.is/stofna-medmaelasoefnun-vegna-frambods-til-sveitarstjornar

Helstu atriði:

  • Framboðslisti skal hafa að lágmarki 5 frambjóðendur og að hámarki 10 frambjóðendur.
  • Hver kjósandi getur aðeins mælt með einu framboði.
  • Frambjóðendur geta ekki verið meðmælendur eigin framboðs.
  • Framboðsfrestur rennur út 10. apríl 2026 kl. 12:00.

Athugið að viðmiðunardagur kjörskrár er 8. apríl, kl. 12:00

Um fjölda frambjóðenda, meðmælenda og önnur formsatriði við framlagningu lista vísast til laga um kosningu sveitarstjórna, sjá kosning.is

Ef enginn fullgildur framboðslisti berst verður kosning óbundin. Ef aðeins einn fullgildur framboðslisti berst er framboðsfrestur framlengdur um tvo sólarhringa. Komi ekki fram nýr framboðslisti innan þess tíma verður framkominn framboðslisti sjálfkjörinn.

Fyrirspurnir til kjörstjórnar má senda á netfangið postur@svalbardsstrond.is

Kjörstjórn Svalbarðsstrandarhrepps

Edda Guðbjörg Aradóttir formaður

Bryndís Hafþórsdóttir

Vignir Sveinsson