Auglýsing vegna DSK tillögu á vinnslustigi í Geldingárshlíð

Geldingsárhlíð, Svalbarðsstrandarhreppi – kynning á deiliskipulagstillögu á vinnslustigi fyrir íbúðarsvæði ÍB23 og ÍB24

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum 13. desember sl. að vísa tillögu á vinnslustigi að deiluskipulagi í Geldingsárhlíð í kynningarferli skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsverkefnið snýr að skipulagningu fimm íbúðarlóða á svæði sem skilgreint er sem íbúðarsvæði ÍB23 og ÍB24 í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins.

 

Deiliskipulagstillaga á vinnslustigi liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 15. desember til 7. janúar 2022 og er auk þess aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, svalbardsstrond.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til föstudagsins 7. janúar 2022 til að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á sbe@sbe.is.

Opið hús vegna kynningarinnar fer fram á sveitarskrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps, Ráðhúsinu Svalbarðseyri, miðvikudaginn 5. janúar milli kl. 12:00 og 15:00. Opið hús fer fram í samræmi við gr. 4.6.1. og 5.6.1. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og mun skipulagsfulltrúi vera viðstaddur og veita upplýsingar um skipulagstillöguna og taka við ábendingum.

 

Skipulags- og byggingarfulltrúi