AUGLÝST EFTIR JÓLALEGRI MYND

Þegar jólin nálgast er verið að undirbúa jólakveðjur sem birtar verða í dagblöðum og á heimasíðu Svalbarðsstrandarhrepps. Nú er kallað eftir hjálp frá ykkur íbúum og vinum Svalbarðsstrandarhrepps;

ef þið eigið jólalegar myndir úr sveitarfélaginu okkar væri gaman að birta þær á heimasíðunni og nýta til birtingar t.d. í Vikudegi með leyfi höfundar. Ljósmyndir má senda á postur@svalbardsstrond.is og hafa nafn ljósmyndara með og jafnvel aldur ef hann fæst uppgefinn.

 

Kær kveðja,
Björg Erlingsdóttir
Sveitarstjóri