Björgunarsveitin Týr eignast allt húsnæðið við Svalbarðseyrarveg 6

Björgunarsveitin Týr hefur nú eignast allt húsnæðið að Svalbarðseyrarvegi 6 eftir kaup á þeim hluta hússins sem sveitarfélagið átti áður. Sveitin átti fyrir helming hússins en með kaupunum hefur hún eignast það allt.

Um er að ræða góða viðbót fyrir björgunarsveitina og mikilvæg tímamót í uppbyggingu aðstöðu hennar.

Á meðfylgjandi mynd eru Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri og Brynjólfur Brynjarsson, formaður Björgunarsveitarinnar Týs.