75 ára afmælismálþing Rarik

Í tilefni af 75 ára afmæli RARIK verður efnt til málþinga í september í Stykkishólmi, á Selfossi, Egilsstöðum og Akureyri, dagana 7. til 13. september.

Yfirskrift málþinganna er:

Rafmagnið í lífi okkar – hreyfiafl landsbyggðar til framtíðar

Á málþingunum verður fjallað um orkuskipti og önnur spennandi verkefni sem framundan eru í orkumálum og hlutverk RARIK sem framsækið tæknifyrirtæki í þeim breytingum.

Málþingin verða öllum opin og aðgangur ókeypis. Húsin opna klukkan 16:30 og verður boðið upp á léttar veitingar ásamt lifandi tónlist um leið og fulltrúar RARIK munu spjalla við gesti um helstu verkefni sem unnið hefur verið að á hverju svæði og svara spurningum.

Að því loknu klukkan 17:00 mun Magnús Þór Ásmundsson forstjóri RARIK hefja málþingin en eftirfarandi frummælendur munu taka til máls:

Ný tækifæri í breyttri framtíð
Bergur Ebbi rithöfundur og ráðstefnustjóri.
Afhendingaröryggi og þjónusta
RARIK stendur frammi fyrir hraðri tæknivæðingu samtímans og áskorunum framtíðarinnar með auknum kröfum um gæði rafmagns, sveigjanlega notkun og fyrirsjáanlega þjónustu. Helga Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs RARIK.

Orkuskipti og loftslagsmál
Loftslagsbreytingar eru ein mesta áskorun samtímans. Fjallað verður um stöðuna í orkuskiptum frá sjónarhóli RARIK.
Kjartan Rolf Árnason, deildarstjóri kerfisstýringar RARIK.

Verðskráin í nútíð og framtíð
Það kostar að koma rafmagninu á milli staða. En hvernig er verðskráin ákveðin og hver er munurinn á framleiðslu, sölu og dreifingu? Getur regluverk um raforkumál verið skemmtilegt?
Silja Rán Steinberg Sigurðardóttir, þróunarstjóri nýsköpunar og greininga hjá RARIK.

Konur í orkumálum
Hver er staða jafnréttismála í orkugeiranum? Hver eru tengsl kynjajafnréttis á vinnustað og frammistöðu fyrirtækja og metnaðarfullra skuldbindinga þeirra um sjálfbæra framtíð?
Hildur Harðardóttir, formaður Kvenna í orkumálum og verkefnisstjóri á sviði samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun.
Á milli dagskráratriða verða birt stutt myndbrot úr kynningarmyndbandi sem unnið hefur verið í tilefni afmælisins.


Málþing RARIK verða eftirtalda daga:

7. september – Hótel Stykkishólmur
8. september – Hótel Selfoss
12. september – Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum
13. september – Hof - Hamrar, Akureyri

Húsin opna klukkan 16:30 með léttum veitingum og dagskrá málþinga hefst klukkan 17:00 og stendur til 18:30.