Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037 – auglýsing á niðurstöðu sveitarstjórnar

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum 05.05.2026 tillögu að Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037 skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingartímabili skipulagstillögunnar og má sjá afgreiðslu sveitarstjórnar í fundargerð á heimasíðu sveitarfélagsins, www.svalbardsstrond.is

Aðalskipulagið hefur hlotið málsmeðferð í samræmi við 30., 31. og 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

F.h. Svalbarðsstrandarhrepps, 

Skipulags- og byggingarfulltrúi