Álagning fasteignagjalda 2026

Álagningu fasteignagjalda 2026 í Svalbarðsstrandarhreppi er lokið og álagningarseðlar eru orðnir aðgengilegir undir „mínar síður“ á upplýsingasíðunni www.island.is.

Á fundi sínum í nóvember s.l. ákvað sveitarstjórn m.a. að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði úr 0,42% í 0,40% vegna ársins 2026. Jafnframt var lóðarleiga lækkuð úr 1,5 % í 1,2 % og fráveitugjald lækkað úr 0,22% í 0,19%

Gjalddagar á ári eru 10 og fyrsti gjalddagi ársins er 1. febrúar.