Framkvæmdir í gangi á Svalbarðseyri

Nú standa yfir framkvæmdir á Svalbarðseyri sem munu bæta aðgengi og innviði svæðisins.

Unnið er að gerð nýs göngustígs frá bílastæði við sundlaug upp að reitnum. Með tilkomu stígsins verður aðgengi að svæðinu betra og öruggara fyrir gangandi vegfarendur.

Jafnframt eru framkvæmdir á vegum Mílu hf. að hefjast á svæðinu, þar sem reist verður nýtt farsímamastur. Með tilkomu mastursins mun netsamband og farsímaþjónusta íbúa batna til muna.

Framkvæmdir við nýjan leikskóla eru einnig í fullum gangi. Búið er að steypa upp húsið og reisa útveggi og eru framkvæmdir því komnar vel á veg.

Þessar framkvæmdir eru mikilvægar fyrir svæðið og munu stuðla að bættum aðstæðum, auknu aðgengi, betri fjarskiptum og bættri þjónustu fyrir íbúa og aðra sem nýta svæðið.