Fundarboð 153. fundur 24.06.25

Dagskrá:

Almenn mál

1.

2503009 - Heiðarsól 3 L232247 og 5 L232248- umsókn um sameiningu lóða

 

Erindi frá lóðarhafa að Heiðarsól 3 og 5, sem frestað var á 150. fundi sveitarstjórnar þann 8. apríl liggur að nýju fyrir fundinum. Óskað er eftir að sameina lóðirnar. Erindinu fylgir breytingarblað sem lýsir umbeðinni sameiningu, unnið af Jódísi Ástu Gísladóttur hjá Larsen, hönnun og ráðgjöf dags. 05.06. 2025, ásamt staðfestingu eiganda upprunalands, dags. 18.06.2025

 

   

2.

2506003 - Hallland, Íbsv-31 - umsókn um nýja vegtengingu

 

Erindi frá Guðmundi H Gunnarssyni f.h. landeiganda um heimild til veglagningar að fyrirhuguðu íbúðarsvæði, ÍB31, samkvæmt rammahluta aðalskipulags fyrir Vaðlaheiði sem er í vinnslu. Fyrir liggur afstöðumynd frá Búgarði dags. 9. maí 2025.

 

   

3.

2503005 - Bakkatún 44 og 46 - breyting á deiliskipulagi

 

Erindi frá lóðarhafa í Bakkatúni 44 og 46, óskað er eftir fjölgun íbúða á lóð í Bakkatúni 46 og breyting á skipulagi lóðar í Bakkatúni 44.

 

   

4.

2211008 - Rammahluti aðalskipulags 1082/2023

 

Tillaga að rammahluta aðalskipulags var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var auglýsingatímabilið frá 27.janúar til 23. apríl sl. Þrettán umsagnir bárust á auglýsingatímabilinu og eru þær til umfjöllunar sveitarstjórnar.

 

   

5.

2503013 - Bakkatún 16

 

Erindi frá lóðarhafa að Bakkatúni 16, lóðarhafi óskar eftir að skila lóð.

 

   

6.

2506009 - Leikskólinn Álfaborg - beiðni um breytingu á deiliskipulagi

 

Fyrir fundinum liggur beiðni frá Svalbarðsstrandarhreppi um breytingu á deiliskipulagi vegna breytingar á byggingarreit/skipulagssvæði.

 

   

7.

2506006 - Skipulag skógræktar

 

Erindi frá Vinum íslenskrar náttúru. Skipulag skógræktar - leiðbeiningar um val á landi til skógræktar.

 

   

8.

2406007 - Tónlistarskólinn á Akureyri

 

Erindi frá Tónlistarskóla Akureyrar.

 

   

9.

2506007 - Beiðni um endurskoðun á þjónustu og aðkomu sveitarfélagsins að Heiðarbyggð

 

Erindi frá Félagi frístundahúsaeigenda í Heiðarbyggð, formlegt erindi vegna málefna sem varða þjónustu, innviði og samspil sveitarfélagsins við fasteignaeigendur á svæðinu.

 

   

10.

2109001 - Túnið í Meðalheimslandi

 

Erindi frá sveitarstjóra, framlagður samningur vegna samkomulags um afnot á túni úr landi Meðalheims.

 

   

Fundargerð

11.

2505002F - Skólanefnd - 33

 

   

Fundargerðir til kynningar

12.

2203006 - Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa

 

Fundargerð embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 96 lögð fram til kynningar.

 

   

13.

2208013 - Fundargerðir stjórnar SSNE

 

Fundargerð stjórnar SSNE nr. 74 lögð fram til kynningar.

 

   

14.

2204002 - Tónlistarskóli Eyjafjarðar - fundargerðir 2023

 

Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Eyjafjarðar nr. 150 lögð fram til kynningar.

 

   

15.

2202008 - Hafnarsamlag fundargerðir

 

Fundargerðir stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands nr. 298 lögð fram til kynningar.

 

   

16.

2208016 - Fundargerðir HNE

 

Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr. 242 lögð fram til kynningar.

 

   

17.

2201013 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022

 

Fundargerðir sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 980, 981 og 982 lagðar fram til kynningar.