Fyrsta skóflustunga tekin að nýrri viðbyggingu við leikskólann Álfaborg

Þriðjudaginn síðasta var tekin fyrsta skóflustungan að byggingu nýrrar viðbyggingu við leikskólann Álfaborg í blíðskaparveðri. Við það tilefni voru samankomin starfsmenn og nemendur leikskólans sem fögnuðu þessum mikilvæga áfanga.

Skóflustungan var tekin með þátttöku nokkurra nemenda skólans, sem þannig fengu að taka beinan þátt í þessum merka degi.

Það voru Guðrún Hallfríður Björnsdóttir skólastjóri Álfaborgar, Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri og Sigurgeir Svavarsson frá Valsmíði ehf. sem tóku fyrstu skóflustunguna, en Valsmíði ehf. mun annast byggingu leikskólans.

Fyrr um daginn undirrituðu Þórunn Sif Harðardóttir fyrir hönd sveitarfélagsins og Sigurgeir Svavarsson fyrir hönd Valsmíði ehf. verksamning um byggingu leikskólans.

Nýr leikskóli mun skapa betri aðstöðu fyrir starfsemi leikskólans og styrkja enn frekar uppbyggingu og þjónustu við yngstu íbúa sveitarfélagsins.