Hallland, Meyjarhóll og Hátún - – deiliskipulag íbúðarbyggðar á ÍB31 og ÍB32

Kynning skipulagslýsingu. 

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum 18. ágúst 2026 að kynna fyrirliggjandi gögn vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir íbúðarbyggð á svæðum ÍB31 og ÍB32 í landi Halllands L152894, Meyjarhóls L152912 og Hátúns L229501, í samræmi við 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Markmið skipulagsvinnunnar er að skapa grundvöll fyrir nýja íbúðarbyggð á svæðinu. Gert er ráð fyrir nýjum íbúðarlóðum fyrir einbýlishús ásamt tilheyrandi byggingarreitum, aðkomu, vegtengingum og innviðum.

Gögn málsins eru aðgengileg í Skipulagsgátt undir málsnúmeri 986/2026 og á heimasíðu Svalbarðsstrandarhrepps. Fyrirspurnir um málið má senda á sbe@sbe.is.

Ábendingar og umsagnir skulu berast í gegnum Skipulagsgátt í síðasta lagi 17. september 2026. Kynningartími er frá 27. ágúst til 17. september 2026.

Hallland, L152894 og Meyjarhóll, L152912, Hátún, L229501, Svalbarðsstrandarhr. lýsing á fyrirhugaðri íbúðarbyggð á ÍB31 og ÍB32