LAUNAFULLTRÚI

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Launavinnsla og launaútreikningur
  • Upplýsingagjöf varðandi launavinnslu og kjaratengd mál
  • Gerð launaáætlana og aðstoð við gerð fjárhagsáætlunar
  • Umsjón og utanumhald í tengslum við starfsmannakerfi
  • Kjaramál og mannauðsverkefni í samráði við næsta yfirmann
  • Færsla launabókhalds og afstemmingar
  • Önnur verkefni í samráði við næsta yfirmann

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Góð þekking og haldbær reynsla af launavinnslu og sambærilegum störfum
  • Þekking á kjaraumhverfi starfsmanna sveitarfélaga er æskileg
  • Góð tölvukunnátta og reynsla af Excel
  • Þekking og reynsla af launa- og mannauðskerfum
  • Hæfni til að greina gögn og upplýsingar
  • Þekking og reynsla á sviði bókhalds kostur
  • Skipulagsfærni og nákvæm vinnubrögð
  • Samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulund
  • Metnaður, sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti

Svalbarðsstrandarhreppur er öflugt og framsækið sveitarfélag við austanverðan Eyjafjörð, í aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri.

Sveitarfélagið býður upp á nálægð við náttúru, öflugt samfélag og góða þjónustu.

Hjá Svalbarðsstrandarhreppi starfar metnaðarfullt og samheldið starfsfólk sem leggur áherslu á fagmennsku, jákvætt starfsumhverfi og góða þjónustu við íbúa.

Með umsókn þarf að fylgja ítarleg ferilskrá sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

UMSÓKNARFRESTUR: 19.06.2026 SÓTT ER UM HÉR: https://jobs.50skills.com/mognum/is/43337

Nánari upplýsingar veita:

Telma Eiðsdóttir I telma@mognum.is
Sigríður Ólafsdóttir I sigga@mognum.is